Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Sauðárkróki
Byggðastofnun fékk Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húsahitun á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu á ársgrundvelli þar sem viðmiðunareignin var 161,1 m2 einbýlishús og 351m3. Lægsti húshitunarkostnaðurinn reyndist vera á Sauðárkróki kr. 68.707 en hæsta húshitunarverð er 216% hærra.
Af þeim stöðum sem skoðaðir voru reyndist rafmagnsverð hæst hjá notendum RARIK í dreifbýli kr. 103.059. Í þéttbýli er rafmagnsverð hæst á orkuveitusvæði RARIK kr. 77.533. Lægst er rafmagnsverðið á Akureyri kr. 66.278. Hæsta verð er rúmlega 55% hærra en lægsta verð. Í þéttbýli er hæsta verð 17% hærra en lægsta verð.
Þegar kemur að húshitunarkostnaðinum verða skilin skarpari segir í Byggkorninu, fréttabréfi Byggðastofnunar. Þar kemur fram að hæsti kyndingarkostnaðurinn á orkuveitusvæði RARIK í dreifbýli sé kr. 217.063. Í þéttbýli er kostnaðurinn hæstur á Grundarfirði, Neskaupstað og Vopnafirði kr. 187.133. Þess ber að geta að á nokkrum öðrum þéttbýlisstöðum er húshitunarkostnaður hærri en hér kemur fram fyrir þá íbúa sem ekki eiga kost á hitaveitu eða fjarvarmaveitu. Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Sauðárkróki kr. 68.707. Hæsta verð er 216% hærra en lægsta verð. Í þéttbýli er hæsta verð 172% hærra en lægsta verð.
Ef horft er til heildarkostnaðar þá er kostnaðurinn hæstur í dreifbýli á orkuveitusvæði RARIK kr. 320.123. Heildarkostnaður í þéttbýli er hæstur á Grundarfirði, Neskaupstað og Vopnafirði kr. 264.686. Lægstur er heildarkostnaðurinn á Sauðárkróki kr. 146.260. Hæsta verð er því 119% hærra en lægsta verð. Í þéttbýli er hæsta verð 81% hærra en lægsta verð.
Í Byggkorninu segir, eins og að framan greinir þá eru aðstæður þannig á nokkrum þéttbýlisstöðum að ekki eiga allir húsráðendur kost á hitaveitu eða fjarvarmaveitu. Húshitunarkostnaður þessara aðila er hærri en fram kemur í súluritinu en sést aftur á móti í samanburðartöflunni. Þá ber og að hafa í huga að á nokkrum stöðum er veittur afsláttur af gjaldskrá hitaveitu þar sem ekki er hægt að tryggja lágmarkshita vatns til notanda.
Sjá töflu um orkukostnað heimila HÉR
Einar Gíslason fyrrverandi stjórnarformaður Skagafjarðarveitna segir að sama orkuverð sé á öllum hitaveitum í Skagafirði þannig að í samanburðinum væri rétt að tala um hitaveitur Skagafjarðarveitna í Skagafirði og skiptir engu máli hvort talað er um dreifbýli eða þéttbýli.
-Ánægjulegt er að við komum svona vel úr úr samanburðinum þrátt fyrir miklar framkvæmdir í veitumálum í Skagafirði á liðnum áratug, segir Einar.