Lækjarmót ræktunarbú ársins þriðja árið í röð

Frá uppskeruhátíðinni. Mynd: thytur.123.is
Frá uppskeruhátíðinni. Mynd: thytur.123.is

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu og Hestamannafélagsins Þyts var haldin í félagsheimilinu á Hvammstanga síðasta dag október mánaðar. Daginn áður var haldin uppskeruhátíð æskulýðsstarfs Þyts. Á hátíðunum voru veittar ýmsar viðurkenningar, m.a. fyrir ræktunarbú ársins og knapa ársins. Lækjamót var valið ræktunarbú ársins 2015, þriðja árið í röð.

Titilinn knapi ársins hlaut Ísólfur L Þórisson en hann hlaut þennan titil líka í fyrra. Í öðru sæti var James Bóas Faulkner og í þriðja sæti var Tryggvi Björnsson. Þorgeir Jóhannesson hlaut titilinn knapi ársins í 2. flokki, Magnús Ásgeir Elíasson varð í öðru sæti og Sigrún Eva Þórisdóttir í því þriðja. Í ungmennaflokki var Birna Olivia Agnarsdóttir í fyrsta sæti, Kristófer Smári Gunnarsson í öðru sæti og Fanndís Ósk Pálsdóttir í þriðja sæti.

Hæst dæmdi stóðhesturinn var Brimnir frá Efri-Fitjum með aðaleinkunnina 8,45. Hæst dæmda hryssan var Snilld frá Syðri-Völlum með aðaleinkunnina 8,37.

Um sextíu krakkar sem tóku þátt í æskulýðsstarfi Þyts fengu viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna og húfu merkta Þyt. Þá voru veitt verðlaun fyrir stigahæstu þrjá knapana í barnaflokki annars vegar og unglingaflokki hins vegar. Eysteinn Tjörvi Kristinsson var stigahæsti knapinn í barnaflokki. Í öðru sæti var Rakel Gígja Ragnarsdóttir og Ingvar Óli Sigurðsson í því þriðja. Í unglingaflokki var Karitas Aradóttir stigahæsti knapinn, Eva Dögg Pálsdóttir í öðru sæti og Anna Herdís Sigurbjartsdóttir í þriðja sæti.

Fleiri fréttir