Lakkríssala til fjármögnunar á boltakaupum
Unglingaráð Tindastóls í körfuknattleik hefur keypt nýja kvennabolta fyrir körfuknattleiksdeildina, en ástandið í þeim boltamálum var ekki gott. Til að fjármagna kaupin ætlar unglingaráð að selja lakkrís.
Undanfarin misseri hefur eftirspurn verið mikil eftir lakkrísnum þegar hann hefur farið í sölu og geta áhugasamir sett sig í samband við meðlimi unglingaráðs og lagt inn pantanir. Einnig má búast við söluborði í Skagfirðingabúð á næstunni.
Pokinn kostar aðeins kr. 1.000 og eru 700 gr. í honum.