Landsmót UMFÍ 50+ á Blönduósi - skráning stendur yfir
5. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið á Blönduósi dagana 26.-28. júní. Allir sem eru 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum, hvort sem þeir eru í félagi eða ekki. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald, 3500 kr., og öðlast þar með þátttökurétt í öllum keppnisgreinum mótsins. Jafnframt verður boðið upp á fyrirlestra um heilbrigðan lífsstíl ásamt heilsufarsmælingum á mótinu.
Fjölmargar keppnisgreinar verða í boði á Landsmóti UMFÍ 50+ á Blönduósi en það eru hestaíþróttir, frjálsar, boccia, bridds, dráttavélaakstur, golf, línudans, júdó, línudans, lombert, pútt, ringó, skák, skotfimi, starfshlaup, dalahlaup, sund, pönnubökubakstur og stígvélakast.
Í fréttatilkynningu segir að markmið mótsins sé að skapa fólki 50 ára og eldri vettfang til að koma saman og keppa í hinum ýmsu íþróttagreinum og kynna um leið þá möguleika sem eru í boði til þess.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins; www.umfi.is og skráningin fer fram hér.