Landsmót UMFÍ 50 + á Hvammstanga
Helgina 24. – 26. júní verður haldið Landsmót UMFÍ 50 + á Hvammstanga og er lagt áhersla á að mótið sé fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og kvölddagskrá. Allir, jafnt ungir sem eldri, eiga að finna eitthvað við sitt hæfi þessa helgi sem mótið fer fram.
Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennafélags Íslands og USVH í samstarfi við sveitarfélagið Húnaþing vestra. Aðrir samstarfsaðilar að mótinu eru Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra og Landssamband eldri borgara.
Þátttökugjald er 3000 kr. óháð fjölda greina sem keppt verður í. Innifalið í gjaldinu er frí á tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi á Hvammstanga þessa helgi og frítt á alla viðburði sem verða í gangi í tengslum við mótið kvöldvaka á föstudagskvöldið og laugadagskvöldið.
Allir geta takið þátt í mótin hvort sem þeir eru í ungmennafélagi eða ekki.
Engin takmörkun er á fjölda liða.
Keppnisgreinar á mótinu: blak, bridds, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, fjallaskokk, hestaíþróttir, golf, pútt, línudans, skák, sund, þríþraut og starfsíþróttir (búfjardómar, dráttavélaakstur, jurtagreining, pönnukökubakstur og kökuskeyting).
Skráning og aðrar upplýsingar um mótið eru að finna á www.landsmotumfi50.is