„Langaði að leyfa öðrum að njóta þess“

Hinn 11 ára gamli Haraldur Óli Guðbergsson á Sauðárkróki ákvað á dögunum að gefa hár sitt til bandarísku góðgerðarsamtakanna Locks of Love. Samtökin sérhæfa sig í að útbúa hárkollur fyrir efnaminni börn og ungmenni undir 21 árs aldri sem glíma við langvinn veikindi.

„Mig langaði allt í einu til að láta klippa mig. Þetta hár hefur verið mér til ánægju og mig langaði að leyfa öðrum að njóta þess, einhvern sem þarf á því að halda,“ sagði Haraldur Óli í samtali við Feyki.

Haraldur hafði safnað hári í þrjú ár og fékk það að fjúka þann 5. mars, og eru lokkarnir 25 sm langir. Foreldrar Haralds, Guðbergur Ellert Haraldsson og Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir, hringdu í Krabbameinsfélag Íslands og var þá bent á heimasíðu Locksoflove.org.

Auðbjörg segir Haraldi alltaf hafa verið umhugað um aðra og að gjöfin gleðji hann ekki síður en þann sem kemur til með njóta góðs af.

Fleiri fréttir