Laugabakkaskóli til sölu
Undirfarið hefur mátt sjá auglýsingar þess efnis að Laugarbakkaskóli í Miðfirði sé til sölu ef viðunandi tilboð fæst í allar fasteignir skólans. Eins og fjallað var um í 13. tölublaði Feykis í gær hefur Húnaþing vestra látið gera úttekt á hagkvæmni þess að kenna öllum nemendum í sveitarfélaginu á Hvammstanga. Fjallað var um skýrslu þess efnis í blaðinu í gær.
Fasteignir Laugarbakkaskóla samanstanda af skólahúsi með kennslustofum, heimavist, mötuneyti, íþróttahúsi og íbúðum auk einbýlishúss og parhúss á leigulóð sveitarfélagsins. Heildarflatarmál fasteignanna er tæpir 4000 fermetrar. Síðastliðin ár hefur húsnæðið verið nýtt sem sumarhótel.
Í auglýsingunni kemur fram að tilboðsgjafar þurfi að skila greinargerð um fyrirhugaða starfsemi í húseignum skólans. Seljendur áskilja sér rétt að taka hvaða tilboði sem er og eða að hafna öllum. Tilboðum og greinargerðum skal skila fyrir 22. apríl 2014 til Magnúsar Leópoldssonar hjá Fasteignamiðstöðinni.