Laus staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskólann austan Vatna
Staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskólann austan Vatna í Skagfirði er laus til umsóknar. Leitað er að öflugum og framsýnum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka virkan þátt í eflingu skólasamfélagsins í héraðinu.
Grunnskólinn austan Vatna er rekinn á þremur stöðum, Hólum í Hjaltadal, Hofsósi og Sólgörðum. Nemendur eru tæplega 80 í 1.-10. bekk. Leikskóli er starfræktur á öllum starfsstöðunum með um 35 börnum. Á milli þessara skóla er mikið samstarf og gert er ráð fyrir að aðstoðarskólastjóri taki virkan þátt í að þróa samstarf og samþættingu við leikskólann enn frekar. Tónlistarskóli er einnig starfræktur á öllum starfsstöðum. Grunnskólinn austan Vatna vinnur eftir öflugu sjálfsmatskerfi, fylgir áætlun Olweusar í eineltismálum og er Grænfánaskóli. Þá tekur skólinn virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.gsh.is
Starfssvið:
Ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi í samstarfi við skólastjóra
Þátttaka í faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
Samstarf við heimili og samfélag
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjandi skal hafa starfsheitið grunnskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á grunnskólastigi sbr. 12. grein laga ne. 87/2008
Hæfni í mannlegum samskiptum
Metnaður, skipulagshæfni og áhugi á nýbreytni- og þróunarstarfi
Aðstoðarskólastjóri starfar í nánu samstarfi við skólastjóra og aðra stjórnendur fjölskyldusviðs og tekur þátt í verkefnum sem snúa að þróun í skólamálum í Skagafirði.
Staðan er laus frá 1. ágúst n.k. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 1. júlí. n.k.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Bjarnason, skólastjóri í síma 865 5044.. Umsóknir má senda rafrænt á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is eða í skila í Ráðhúsið á Sauðárkróki í umslagi merktu ,,Umsókn um starf aðstoðarskólastjóra“. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Sveitarfélagið Skagafjörður segir frá þessu.