Laus störf í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða tvo öfluga einstaklinga í tvær 75% fastar stöður við almenn störf í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra frá og með 1. maí nk. Um vaktavinnu er að ræða og  skulu umsækjendur vera orðnir 18 ára og þurfa að geta staðist stöðupróf í sundi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og SGS.

Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að í samræmi við ákvæði Jafnréttisáætlunar sveitarfélagsins eru konur jafnt sem karla hvattar til að sækja um störfin.

Umsóknir skulu vera skriflegar og hafa borist á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 18. apríl nk. Heimilt er að senda umsóknir á netfangið sundlaug@hunathing.is

Nánari upplýsingar veitir Karólína Gunnarsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 867-7542 & 455-2411.

Fleiri fréttir