Lausar stöður við Grunnskólann austan Vatna

Um þessar mundir eru auglýstar nokkrar lausar stöður við Grunnskólann austan Vatna. Þar vantar kennara í hlutastöður í smíðum og handmennt, deildarstjóra með kennsluskyldu á kennslustaðinn á Sólgörðum, starfsmann í klefagæslu og stuðningsfulltrúa.

Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða kennara til starfa næsta skólaár. Kennslugreinar eru smíðar, um 30% hlutfall og handmennt, um 30% hlutfall. Á kennslustað skólans á Sólgörðum er laus 50% deildastjórastaða og 50% kennsla í almennum greinum.

Hæfniskröfur eru kennarapróf / leyfisbréf, faglegur metnaður, hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla og áhugi á að starfa með börnum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og samband Íslenskra sveitafélaga. Umsóknarfrestur er til 02.07.2013. Nánari upplýsingar um störfin veitir Jóhann Bjarnason, skólastjóri í síma 865-5044.

Grunnskólinn austan Vatna óskar einnig eftir starfsmanni í klefagæslu í íþróttum (karlmanni) í 25% starfshlutfall og stuðningsfulltrúa í 50% starfshlutfall. Starfsmaður í klefagæslu þarf að vera karlmaður en annars möguleiki er á að sameina stöðurnar í eina 75% stöðu.

Hæfniskröfur eru hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla og áhugi á að starfa með börnum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands sveitarfélaga. Umsóknarfrestur 02.07.2013. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Bjarnason, skólastjóri í síma 865-5044.

Fleiri fréttir