Leikfélagið ræsir út í haustverkefnið
Startfundur vegna haustverkefnis Leikfélags Sauðárskróks verður haldinn á Kaffi Krók sunnudaginn 23. ágúst klukkan 20:00. Áformað er að setja upp Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner í leikstjórn Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur.
„Við óskum eftir fólki til að leika,smíða,mála, vinna við hljóð og ljós, finna og föndra búninga og leikmuni, sauma,hvísla, selja miða og margt margt fleira sem þarf til að koma leiksýningu á fjalirnar,“ segir í tilkynningu frá leikfélaginu. Aldurstakmark til þátttöku í sýningunni er 16 ára.
„Þar sem Kardemommubærinn er stór og viðamikil sýning er mjög nauðsynlegt að allir sem vilja starfa við sýninguna, innan sviðs sem utan, mæti á fundinn til að við sjáum hverjir ætla að vera með og ekki verði töf á að æfingatímabilið geti hafist,“ segir einnig í tilkynningunni.
Þeim sem vilja vera með en komast ekki á fundinn eða hafa einhverjar spurningar er bent á að hafa samband við formann LS, Sigurlaugu Dóru, í síma 8625771 fyrir fundinn. „Allir velkomnir á fund. Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir loks í tilkynningunni.