Leiklistarval 9. bekkjar Árskóla sýnir Útskriftaferðina

Leiklistarval 9. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki sýnir leikverkið Útskriftaferðin eftir Björk Jakobsdóttur í matsal Árskóla þriðjudaginn 12. maí og hefst sýningin kl. 18:00.  Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Leiklistarvalið er þátttakandi í verkefninu Þjóðleikur sem er leiklistarverkefni á landsbyggðinni og fer  fram í samvinnu Þjóðleikhússins og menningarráða, leikfélaga og skóla og margar aðila um land allt.

Um helgina tóku þau þátt í Þjóðleikshátíð á Ísafirði þar sem sex leiklistahópar frá Ísafirði, Hólmavík og Sauðárkróki sýndu sín leikverk.

/fréttatilkynning

Fleiri fréttir