Leikskólinn Ársalir fær góða gjöf

Í gær færðu Lionsklúbbur Sauðárkróks og Lionsklúbburinn Björk, leikskólanum Björk lífsleiknigögn til notkunar við skólann að andvirði 220.000 króna. Um var að ræða nokkra upphæð í afgang frá síðustu jólatrésskemmtun sem klúbbarnir héldu í íþróttahúsinu, svo og verulegt framlag frá klúbbunum tveimur. Lionsfélagar úr báðum klúbbum afhentu gjöfina leikskólastjóra Önnu Jónu Guðmundsdóttur sem tók við henni með miklu þakklæti og sagði að kæmi að miklu gagni í leik og starfi skólans.

Anna Jóna sagði að hún þessa hluti vel þar sem hún hafi sjálf tekið þátt í því að þróa þá á sínum tíma, eins hafi leikskólinn Glaðheimar tekið þetta upp. Lífsleiknikassinn inniheldur eina dyggðamús sem kennarinn stjórnar og notar sem sögumann sem útskírir fyrir þeim ýmsar hliðar dyggðanna.

-Þetta byggist á starfi með tólf dyggðum sem eru settar fram í ákveðinni röð og eru: vinsemd; virðing; hófsemi; glaðværð; hugrekki; hjálpsemi; þolinmæði; sköpunargleði; kurteisi; áreiðanleiki; samkennd og ábyrgð. Við munum byrja með þetta í haust en starfsfólk mun setja sig inn í þetta verkefni fyrir þann tíma og verður unnið með eina dyggð á hverri önn, sem er mjög rólegt en skilar góðum árangri, segir Anna Jóna og bætir við að hugmyndafræðin með þessu er að gera fólk betra og börn og fullorðna meðvitaða um að koma vel fram við aðra.

Fleiri fréttir