Leikskólinn Ásgarður fær gjafir frá Bjarma

Guðmundur Haukur Sigurðsson og Eggert Karlson frá Lionsklúbbnum Bjarma komu færandi hendi og gáfu leikskólanum Ásgarði barnahjól. Mynd/Ásgarður.
Guðmundur Haukur Sigurðsson og Eggert Karlson frá Lionsklúbbnum Bjarma komu færandi hendi og gáfu leikskólanum Ásgarði barnahjól. Mynd/Ásgarður.

Fulltrúar frá Lionsklúbbnum Bjarma, þeir Guðmundur Haukur Sigurðsson og Eggert Karlson, komu færandi hendi og gáfu leikskólanum Ásgarði barnahjól, fjögur til nota utandyra og tvö til nota innandyra. „Það ríkti mikil eftirvænting hjá nemendum leikskólans þegar þau fengu að opna pakkann. Þessa dagana er mikill áhugi hjá nemendum að komast í Útgarð og hjóla enda leikur veðrið við okkur,“ segir í fréttatilkynningu frá leikskólanum. 

„Við sendum félagsmönnum í Lionsklúbbnum Bjarma bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf til skólans, það er ómetanlegt að eiga ykkur að,“ segir ennfremur í tilkynningunni frá nemendum og starfsfólki Ásgarðs.

Fleiri fréttir