Leikur hjá Mfl kvenna í dag

Í dag klukkan 14:00 taka stelpurnar í Tindastóli á móti liði Hauka úr Hafnarfirði í 1. deild kvenna. Tindastóll er í fimmta sæti með 3 stig eftir þrjá leiki en Haukar tveimur sætum ofar með 6 stig eftir tvo leiki.

Tindastólsliðið hefur barist vel í leikjum sínum fram að þessu en vantar tilfinnanlega að skora mörk því boltinn hefur einungis ratað tvisvar í netið hjá andstæðingunum en átta sinnum hafa þær þurft að sækja boltann í eigið mark. Eitthvað hafa meiðsli verið að hrjá liðsmenn en Bjarki Már þjálfari er bjartsýnn á batnandi gengi liðsins.

Óhætt er að mæla með góðri skemmtun á vellinum í dag og því allir hvattir til að mæta og hvetja stelpurnar til sigurs.

Fleiri fréttir