Leikur Þórs og Tindastóls verður í beinni á Mælifelli í kvöld
Meistaraflokkur Tindastóls heldur suður yfir heiðar í dag og etur kappi við Þórsara í Þorlákshöfn kl. 19.15. Strákarnir sýndu það gegn Snæfelli á mánudaginn að á góðum degi geta þeir lagt hvaða lið sem er.
Þórsarar sitja í 2. sæti deildarinnar með 26 stig, en Tindastóll er kominn í 12 stig og er liðið sem stendur í 9. sæti. Það er mikil barátta ennþá um sæti í úrslitakeppninni og fall og í gærkvöldi þrengdist enn staðan á botninum þegar ÍR-ingar skelltu liði KFÍ í framlengdum leik. Það er því ljóst að Stólarnir mega illa við að tapa leikjum því liðið stendur oftar en ekki illa í innbirðisviðureignum við liðin í botnbaráttunni.
Leikur Þórs og Tindastóls verður sýndur á Tindastóll TV og ætla stuðningsmenn að hittast á Mælifelli af því tilefni, gæða sér á veitingum af hlaðborði og njóta stundarinnar. 25% af veitingasölunni rennur í sjóði körfuknattleiksdeildar að venju.