Leitað að hljómsveitum á Gæruna
Nú er verið að auglýsa eftir hljómsveitum til að spila á tónlistarhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki sem fram fer 12. - 13. ágúst í gærusal sútunaverksmiðjunnar Loðskinns. Sett er það skilyrði að flytjendur þurfi að spila frumsamda tónlist.
Gæran var haldin í fyrsta skiptið á síðasta ári og tókst afar vel að dómi áheyrenda en einnig fékk hún lofsamlega dóma í netsjónvarpsþættinum The Sleepless In Reykjavik WebTv.
Aðstandendur hátíðarinnar segja að þeir sem hafi áhuga geti skrifað eitthvað stutt um hljómsveitina og gott væri að fá tóndæmi. Umsóknin er svo send á gaeranmusic@gmail.com Einnig vantar sjálfboðaliða til að aðstoða á sjálfum tónleikunum og geta þeir sem hafa áhuga á að leggja hátíðinni lið haft samband í sama netfang