Leitað að hrossum í Ræktun 2011
Nú er leitað að skagfirskum, húnvetnskum og eyfirskum hrossum til að taka þátt í stórsýningunni Ræktun 2011 í reiðhölinni Svaðastöðum á Sauðárkróki sem halda á laugardaginn 26. mars nk.
Það sem um ræðir eru ræktunarbúsýningar þar sem að lámarki fjögur hross eru í hóp, þá er leitað að ungum, efnilegum og hátt dæmdum hryssum og stóðhestum sem og afkvæmahópum en þar þurfa að fylgja a.m.k. fjögur afkvæmi stóðhestunum en þrjú afkvæmi hryssunum. Þá er einnig verið að auglýsa eftir úrvalsgóðum einstaklingum.
Þeir sem telja sig vera með hross sem passa við ofangreindar lýsingar og vilja vera með á sýningunni geta haft samband í síma 453 6440 fyrir fimmtudaginn 17. mars.