Leitarhundur heimsækir heimavistina
Í gærmorgun fengu vistarbúar á heimavist Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra heimsókn frá lögreglunni með leitarhund. Um er að ræða venjubundinn lið í forvarnarstarfi skólans og miðar að því að tryggja vistarbúa gegn fíkniefnaneyslu á vistinni.
Á heimasíðu FNV segir að á hverri önn er venja að fá lögregluna til að fara einu sinni eða oftar um heimavist FNV með leitarhund en skemmst frá því að segja að engin fíkniefni eða merki um slík efni fundust.