Lesið fyrir veikt lamb

Bændur hafa í nógu að snúast þessa dagana í sauðburði. Á mbl.is kemur fram að á Grænumýri í Skagafirði sitji menn ekki auðum höndum og þegar eitt lambið veiktist og var tekið inn hafi 3 ára heimasætan, Sigurbjörg Svandís, ákveðið að lesa fyrir lambið svo því leiddist ekki.

Myndin sem fylgir fréttinni er tekin af móður Sigurbjargar, Kristínu Höllu Bergsdóttur. „Hún náði í margar bækur, um dalmatíuhunda og prinsessur, og sat þarna og las. Og lambið sperrti eyrun og hlustaði af athygli,“ segir Kristín Halla. Aðspurð segir hún sauðburð hafa gengið vel og fylgist Sigurbjörg með af miklum áhuga. „Hér er fullt af lömbum og kiðlingum og hún er galvösk þarna úti að skoða þetta allt saman,“ segir Kristín Halla í samtali við mbl.is.

Fleiri fréttir