Lestrarbingó í jólafríi

Nemendur Grunnskólans austan Vatna voru hvattir til að taka þátt í lestrarbingói í jólafríinu.
Nemendur Grunnskólans austan Vatna voru hvattir til að taka þátt í lestrarbingói í jólafríinu.

Nemendur Grunnskólans austan Vatna hafa verið hvattir til taka þátt í lestrarbingói Heimila og skóla í jólafríinu. Á heimasíðu skólans segir að mikilvægur liður í lestrarnámi og þjálfun barna séu reglulegar æfingar. Rannsóknir hafi sýnt að nemendur sem ekki lesa í skólafríum lesi hægar eftir frí heldur en áður en þeir fóru í frí.

Því voru bingóspjöld fyrir lestrarbingó sett inn á Facebook síðu skólans þar sem allir geta prentað út og merkt við hvar og hvenær þeir hafa lesið. „Við hvetjum nemendur að sjálfsögðu til að mæta með bingóspjöldin í skólann eftir frí og sýna kennurunum sínum,“ segir á heimasíðu Grunnskólans austan Vatna.

 

Fleiri fréttir