Lestur er bestur - út fyrir endimörk alheimsins
Á morgun, fimmtudaginn 8. september er Bókasafnsdagurinn en hann er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu og einnig fyrir starfsfólk safna til þess að gera sér dagamun. Í tilkynningu frá Héraðsbókasafni Skagfirðinga segir að eitt og annað verði gert sér til dundurs flestum til ánægju.
Meðal dagskráliða mun Kristín Einarsdóttir blaðamaður verða með fyrirlestur um Guðrúnu frá Lundi frá kl. 17. Boðið verður upp á kaffi og kökur og svo er tilvalið að skila bókum sem gleymst hafa heima því engar sektir verða innheimtar þennan dag. Þá verður gestum boðið að þiggja bók að gjöf.
Safnið er opið alla virka daga frá kl 11-18 og hefur það nú fengið nýtt símanúmer sem er: 455 6050