Léttar og kátar í Landanum
Æskuvinkonurnar Stella Jórunn A. Levy og Sæunn V. Sigvaldadóttir framleiða ost undir nafninu Sæluostur í sveitinni, við mjög góðar viðtökur. Þær ræddu við blaðamann Feykis fyrir nokkru (31. tbl.) og komu einnig fram í Landanum á RÚV síðastliðinn sunnudag.
Þær stöllur hafa alltaf haft áhuga á ostagerð. „Þar sem ég er úr sveit hef ég alltaf haft áhuga á heimagerðum mat og hef prufað mig áfram með að útbúa skyr og í raun allskonar gamaldags sveitarmat,“ sagði Stella. Sæunn hefur aftur á móti alltaf verið með ost á heilanum.
Stella og Sæunn hafa í nógu að snúast í ostaframleiðslunni og taka þær einn dag í viku í ostagerð. Samstarf æskuvinkvennana segja þær vera eins og gott hjónaband þar sem þær hafa lært að leiða ýmislegt hjá sér. Stundum kemur það fyrir að þær byrja að tuða hvor í annarri og loks segir hin: „Flott tuð! Þetta var virkilega flott tuð hjá þér!“ og þá hlægja þær.
Almennt eru þær bjartsýnar, léttar og kátar . Þá ræða þær oft um framtíðaráform sín í gamni í bland við alvöru. Þær myndu gjarnan vilja geta verið ostagerðarmenn í fullu starfi og en til að geta fært út kvíarnar þyrftu þær að eignast sýna eigin aðstöðu. Þá láta þær sig dreyma um framtíðareldhús sitt þar sem þær framleiða osta klæddar í hvítum sloppum, með hárnet, rauðan varalit og gleðina að vopni.
Hér má sjá innslagið úr Landanum.