Lewis með stórleik í sterkum sigri Stólanna
Dominos-deildin hrökk í gang í gærkvöldi en þá fóru fram þrír leikir. Þar á meðal var leikur ÍR og Tindastóls í Hertz-hellinum í Seljaskóla. Leikurinn var vel leikinn og spennandi þó Stólarnir hafi lengstum haft frumkvæðið. Lokatölur voru 90-103.
ÍR-ingar börðust eins og ljón í upphafi leiks, tilbúnir að sýna að getgátur um fallbaráttuslag í vetur væru tóm þvæla. Stólarnir létu hamagang heimamanna þó ekki slá sig út af laginu og leikurinn í járnum framan af. Lið Tindastóls með Darrel Lewis í feyknaformi komst fjórum stigum yfir, 20-24, fyrir lok fyrsta leikhluta og var síðan búið að ná níu stiga forystu áður en annar leikhluti var hálfnaður. Mestur varð munurinn 15 stig, 28-43, þegar Lewis skoraði 3ja stiga körfu og fékk vítaskot að auki. Líkt og í fyrsta leikhluta kláraði Lewis annan leikhluta með flautukörfu, að þessu sinni utan 3ja stiga línunnar, og staðan í hálfleik 42-51.
Heimamenn höfðu verið nokkuð óagaðir í leik sínum í fyrri hálfleik og söfnuðu villum. Þeir komu yfirvegaðri til leiks í síðari hálfleik og klóruðu í forystu Stólanna. Helgi Margeirs hélt þeim þó mátulega fjarri með þremur 3ja stiga skotum á þremur mínútum og Tindastóll fór inn í fjórða leikhluta með ellefu stiga forskot, 61-72. ÍR-ingar minnkuðu muninn í sex stiga snemma í síðasta leikhluta en Stólarnir gáfu ekkert eftir og lönduðu öruggum sigri.
Vísir.is hafði eftir Pieti Poikola þjálfara Tindastóls að leik loknum að hann hefði séð margt gott í leik sinna manna. Hver einasti leikmaður hafði eitthvað gott fram að færa í kvöld og þannig viljum við hafa það. Við viljum vera lið sem er með kröftuga heild. Ég myndi segja að við vorum góðir í fimmtán mínútur og þokkalegir í hinar 25. Það er ásættanlegt. Þetta var fínn körfuboltaleikur og bæði lið gerðu margt gott í kvöld. “ sagði Poikola.
Darrel Lewis gerði 37 stig og tók 11 fráköst og Flake, sem er í fínu formi, gerði 17 stig. Þá gerðu Helgi Margeirs og Svavar Birgis 12 stig hvor. Allir leikmenn Stólanna fengu að spreyta sig í leiknum og náðu tíu þeirra að koma stigum á töfluna. 3ja stiga nýting beggja liða var ríflega 30% en nýting Tindastólsmanna innan teigs var mun betri en ÍR-inga.
Stig Tindastóls: Lewis 37, Flake 17, Svavar 12, Helgi Margeirs 12, Pétur 9, Hannes 6, Arnþór 4, Helgi Viggós 3, Pálmi 2 og Viðar 1.