Leyfi veitt fyrir rallýkeppni í Skagafirði helgina 22. - 23. júlí
Bílaklúbbur Skagafjarðar hefur sótt um leyfi til að halda rallýkeppni í Skagafirði helgina 22. - 23. júlí nk. „Eknar verða sérleiðirnar: 744 Þverárfjallsvegur, (gamli vegurinn að mestu), 742 Mýrarvegur frá Mánaskál að fjárrétt við Kirkjuskarð, F 752 Skagafjarðarvegur frá Litluhlíð að Þorljótsstöðum, F 756 Mælifellsvegur um Mælifellsdal, Sauðárkrókshöfn og Nafir,“ segir í fundargerð byggðarráðs frá því í morgun.
Jafnframt er tekið fram að keppnin fari fram í samræmi við keppnisreglur AKÍS um aksturskeppni.
„Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt,“ segir loks í fundargerð.