Lið Skagafjarðar mætir Fljótsdalshéraði í undanúrslitum

Lið Skagafjarðar er komið í undanúrslit spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, og mætir harðsnúnu liði Fljótsdalshéraðs í kvöld. Viðureignin hefst í Ríkissjónvarpinu kl. 20:05.

Skemmst er að minnast þegar Útsvarslið Skagafjarðar fór á miklum kostum í Sjónvarpssal þann 20. mars sl. þegar þau Guðný, Guðrún og Vilhjálmur gerðu sér lítið fyrir og slógu út ágætt lið Akureyringa í spennandi og skemmtilegum þætti og tryggðu sér sæti í undanúrslitum.

Þá hefur lið Fljótsdalshéraðs notið mikillar velgengni í keppninni fram til þessa en liðið hefur í tvígang komist í úrslitaviðureignir Útsvars og er því von á spennandi viðureign í kvöld.

Lið Skagafjarðar er skipað þeim Guðnýju Zöega, Guðrúnu Rögnvaldardóttur og Vilhjálmi Egilssyni.

Fleiri fréttir