Lífsdans Geirmundar

“Stífar æfingar hafa staðið yfir síðan í haust,  hjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og hljómsveit Skarphéðins Einarssonar á verkefninu “Lífsdans Geirmundar Valtýssonar.”  Lögin voru útsett fyrir kórinn af Rögnvaldi Valbergssyni. Nú styttist í fyrstu sýningu en hún verður á Blönduósi nk. fimmudagskvöld 7. mars kl. 20:30.

Næsta sýning er svo í Félagsheimilinu á Hvammstanga 8. febrúar kl. 20:30 , og svo í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki 10. mars kl. 15:00 og í Miðgarði sama dag kl. 20:30. Er það von kórsins að sem flestir láti sjá sig og komi á þessa sýningu sem er sú metnaðarfyllsta sem að kórinn hefur ráðist í.  Bæklingur hefur verið borinn út í öll hús á Norðurlandi vestra og þar koma fram helstu upplýsingar.”

.

Fleiri fréttir