Líney hlutskörpust á úrtökumóti KS-deildarinnar í gærkvöldi
Úrtaka fyrir KS-deildina fór fram í gærkvöldi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki en keppt var um átta laus sæti fyrir keppni vetrarins. Keppnin var hörð og spennandi og að sögn Stefáns Reynissonar keppnishaldara voru á ferð hörku knapar og hestar sem örugglega eiga eftir að hrista upp í keppninni. Stemningin var góð á pöllunum og fjölmenni mikið.
Þau Fanney Indriðadóttir og Ólafur Magnússon höfðu unnið sér inn þátttökurétt með árangri sínum í deildinni í fyrra en þau drógu sig úr keppni nú og því var keppt um tvö auka sæti. Þeir átta knapar sem bætast í hópinn í KS deildinni í vetur eru:
4g 5g samt
- 1 Líney María Hjálmarsdóttir 6,47 6,67 6,57
- 2 Teitur Árnason 6,73 6,17 6,45
- 3 Hekla Katarína Kristinsdóttir 6,50 6,40 6,45
- 4 Hörður Óli Sæmundarson 6,17 6,60 6,38
- 5 Þorsteinn Björnsson 6,13 6,33 6,23
- 6 Jóhann Magnússon 6,13 6,13 6,13
- 7 James Bóas Faulkner 5,93 6,03 5,98
- 8 Bergrún Ingólfsdóttir 6,40 5,53 5,97
Eftirtaldir knapar unnu sér inn sæti í fyrra en eins og áður sagði drógu þau Fanney Indriðadóttir og Ólafur Magnússon sig úr keppni í ár:
- 1. Bjarni Jónasson
- 2. Sölvi Sigurðarson
- 3. Mette Mannseth
- 4. Ísólfur Líndal
- 5. Þórarinn Eymundsson
- 6. Ólafur Magnússon
- 7. Tryggvi Björnsson
- 8. Baldvin Ari Guðlaugsson
- 9. Þorbjörn H Matthíasson
- 10. Fanney D Indriðadóttir
- 11. Elvar Einarsson
- 12. Viðar Bragason
Fyrsta mót KS-deildarinnar á þessum vetri verður 20. febrúar þegar keppt verður í fjórgangi.