Litbrigði samfélags

Það var troðfullt við opnun myndlistarsýningarinnar Litbrigði samfélags í Gúttó á Sauðárkróki við upphaf Sæluviku s.l. sunnudag. Sýningin er samsýning listamanna úr Skagafirði og nágrenni og er þetta þriðja árið í röð sem hún er haldin í þessari menningarviku Skagfirðinga.

Við opnunina söng Sara Rut Fannarsdóttir sem er ein af 14 sýnendum myndlistarsýningarinnar við undirleik Fúsa Ben. Sýningin er opin virka daga frá klukkan 15-19 og um helgar frá 13-18 og stendur til og með 15. maí.

Fleiri fréttir