Ljósmyndakeppninni að ljúka
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsti í vor eftir þátttöku í ljósmynda- og myndbandasamkeppni um myndir teknar í Skagafirði. Þemað er náttúra og mannlíf í sveitarfélaginu. Keppnin mun standa yfir til hádegis þann 31. júlí næstkomandi.
Tilgangur keppninnar er að fá gott myndefni til kynningar á sveitarfélaginu með liðsinni íbúa og annarra sem leið eiga um héraðið. Keppt er í tveimur flokkum, um bestu myndina og besta myndbandið og eru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki.
Skráning er á netfangið ljosmyndir@skagafjordur.is og hægt er að kynna sér reglur og verðlaun keppninnar hér.