Ljóst að um gríðarlegt tekjutap er að ræða
Byggðarráð Húnaþings vestra ræddi þá erfiðu stöðu sem sauðfjárbændur standa nú frammi fyrir á fundi sínum í dag. Ljóst er að tekjutap bænda verður gríðarlegt komi sú lækkun á afurðaverði sem tilkynnt hefur verið til framkvæmda og hefur það áhrif á samfélagið allt en ekki aðeins sauðfjárbændur. Miðað við boðaða verðlækkun mun heildarverðmæti dilkakjöts í sveitarfélaginu lækka úr 426 milljónum haustið 2016 niður í 281 milljón á þessu hausti og er það lækkun um 145 milljónir króna. Svohljóðandi bókun var lögð fram á fundinum:
„Byggðaráð Húnaþings vestra lýsir yfir miklum áhyggjum af boðaðri lækkun á verði til sauðfjárbænda á komandi sláturtíð, en um 28% íbúa sveitarfélagsins búa á sauðfjárbýlum og ljóst að fyrirhugað tekjutap bænda hefur ekki aðeins áhrif á einstaka fjölskyldur heldur samfélagið allt. Mikið er af afleiddum störfum vegna sauðfjárræktar í sveitarfélaginu og ef rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa hrynur þá mun í kjölfarið draga úr annarri starfssemi s.s. fækkun starfa í sláturhúsi, minnkandi umsvif matvöruverslunar, pakkhúss og hafnarinnar, á bifreiðaverkstæðum, bókhaldsþjónustu, sem og annarri almennrar þjónustu.
Haustið 2015 var vegið meðalafurðaverð til bænda um 600 kr./kg. Haustið 2016 lækkaði afurðaverð til sauðfjárbænda um ríflega 10% og var vegið meðalverð um 538 kr./kg. Haustið 2017 eru enn boðaðar verðlækkanir, allt að 35%, og gangi þær spár eftir mun afurðaverð falla niður í um 350 kr./kg. Miðað við þessar forsendur er heildarlækkun afurðaverðs í sveitarfélaginu um 145 milljónir króna frá haustinu 2016. Sé hins vegar litið aftur til ársins 2015 er heildarlækkunin um 186 milljónir króna á tveggja ára tímabili.
Verði af þeim lækkunum á verði til bænda sem afurðastöðvar á svæðinu hafa boðað nú í haust er ljóst að um gríðarlegt tekjutap er að ræða og í raun forsendubrest í rekstri flestra sauðfjárbúa. Afar ólíklegt er að sauðfjárbændur geti staðið við þær skuldbindingar sem stofnað hefur verið til í gegnum árin og miðuðu við aðrar forsendur en menn standa frammi fyrir í dag. Hætt er við að bændur lendi í fátækragildru með ófyrirséðum áhrifum fyrir samfélagið allt.
Byggðarráð Húnaþings vestra skorar á ráðherra landbúnaðarmála og ráðherra byggðamála, ásamt þingmönnum kjördæmisins, að beita sér fyrir því að málefni sauðfjárbænda verði leyst með farsælum hætti“.