Lokað í dag vegna veðurs
Mjög hvasst er á Skíðasvæði Tindastóls í dag 12 til 18m/S og skafrenningur. Því mun ekki verða hægt að renna sér á skíðum þennan föstudaginn. Hins vegar spáir blíðu veðri á morgun laugardag og segir á heimasíðu Tindastóls að gert sér ráð fyrir að þá verði hægt að skíða í frábæru færi.