Lokaleikur tímabilsins hjá meistaraflokki í Njarðvík í kvöld
Tindastóll leikur síðasta leik sinn í Iceland Express deildinni þetta tímabilið í Njarðvík í kvöld. Úrslitakeppnin er úr sögunni að þessu sinni og aðeins leikið fyrir heiðurinn. Þetta verður jafnframt kveðjuleikur þeirra Hayward, Sean og Kiki sem halda af landi brott á föstudag og laugardag.
Leikurinn í kvöld skiptir engu máli varðandi stöðu Njarðvíkinga í úrslitakeppninni, en Tindastóll getur rifið sig upp í 9. sæti með sigri og menn hljóta að vilja frekar enda í næsta sæti við úrslitakeppnina í staðinn fyrir næsta sæti við fall. Njarðvíkingar eru öruggir í 7. sætinu og aðeins er spurningin fyrir þá, hvaða liði þeir mæta í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, en það geta orðið KR, Grindavík og Keflavík, allt eftir úrslitum þeirra liða.
Annars hefur okkar eigið gúrú, Rúnar Birgir Gíslason, sett saman áhugaverða frétt á karfan.is um möguleikana sem eru uppi á teningnum í lokaumferðinni, sérstaklega hvað varðar sæti 2. - 4. en einnig berjast Fjölnir og Haukar um lokasætið í úrslitakeppninni.
Erlendu leikmennirnir okkar halda af landi brott á föstudag og laugardag og koma ekki aftur norður í millitíðinni. Það er full ástæða til að þakka þeim fyrir veturinn, enda snjallir leikmenn á ferðinni og glöddu þeir okkur með flottum tilþrifum inn á milli.
Það var létt yfir strákunum á æfingunni í gærkvöldi og menn orðnir þreyttir eftir annasamt tímabil. Æfingar halda þó áfram fram á sumar þegar sumarfrí verður tekið.
Leikurinn í Njarðvík hefst kl. 19.15 og verður í beinni tölfræðilýsingu á kki.is
/tindastoll.is