Löngumýrargengið í Lindarkirkju

Á miðvikudagskvöldið voru styrktartónleikar í Lindakirkju í Kópavogi þar sem Löngumýrargengið kom fram ásamt ýmsum landþekktum tónlistarmönnum. Markmið tónleikanna var að styrkja orlofsdvöl eldri borgara af höfuðborgarsvæðinu í Löngumýri í Skagafirði.

„Í fjölmörg ár hefur íslenska þjóðkirkjan skipulagt orlofsdvöl fyrir eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði. Til að hægt sé að niðurgreiða dvalarkostnað gesta okkar að einhverju leiti blásum við til styrktartónleika í Lindakirkju í Kópavogi.
Listamennirnir, sem allir gefa vinnu sína, eru eftirfarandi: Áslaug Helga, Gissur Páll, Guðrún Gunnars, Löngumýrargengið (Gunnar, Íris, Jón Hallur og Sigvaldi) og Páll Rósinkranz. Óskar Einarsson er tónlistarstjóri tónleikanna,“ segir í tilkynningu um tónleikana.

Löngumýrargengið samanstendur af Gunnari Rögnvaldssyni, staðarhaldara á Löngumýri og Sigvalda syni hans, Jóni Halli Ingólfssyni og Írisi Olgu Lúðvíksdóttur í Flatatungu.

Fleiri fréttir