Losun rotþróa í Skagafirði

Mikil rotþró. Mynd: europe.saeplast.com
Mikil rotþró. Mynd: europe.saeplast.com

Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum. Svæðið sem losunin nær til er frá Svartárdal, Austur- og Vesturdal að Sauðárkróki. Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar.

Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa vinsamlegast komið þeim á framfæri á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455 6000 eða á netfangið ipi@skagafjordur.is.

/Fréttatilkynning

 

 

Fleiri fréttir