Lóuþrælar í konudagsmessu

Konudagsmessa verður í Hvammstangakirkju nk. sunnudag 20. febrúar kl. 11 og eru konur sérstaklega boðnar velkomnar. Karlakórinn Lóuþrælar verður messuhópur dagsins og afhenda þeir öllum konum rauða rós við innganginn og leiða sálmasöng undir stjórn Guðmundar St. Sigurðssonar.

Eftir messu bjóða herrarnir upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu auk þess að segja frá vesturförinni til Kanada s.l. sumar í máli og myndum sem þótti takast afskaplega vel.

Fleiri fréttir