Lóuþrælar í Seltjarnarnesskirkju
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi ætla í vikulokin að bregða sér suður yfir heiðar og halda tónleika í Seltjarnarnesskirkju, laugardaginn 26. mars kl 15:00. Söngstjóri er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari er Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Aðgangseyrir er 2000 krónur (ekki posi) Frítt fyrir 14 ára og yngri. Söngskráin er blönduð íslenskum og erlendum lögum við allra hæfi.
-Verið velkomin að hlýða og horfa á norðlenska karla þenja raddböndin, segja meðlimir Karlakórsins Lóuþræla.