Lýsir andstöðu við að gengið verði lengra í afnámi tolla
VG í Skagafirði lýsir andstöðu við að gengið verði lengra í afnámi tolla á innfluttar landbúnaðarafurðir án fyrirliggjandi úttektar á áhrifum á íslenska landbúnaðarframleiðslu og án þess að gerður hafi verið nýr búvörusamningur til lengri tíma. Þetta kemur fram í ályktun sem gerð var á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær, 7. október.
Í fréttatilkynningu frá VG í Skagafirði segir að matvælaframleiðsla sé ein meginstoð byggðar í Skagafirði og jafnframt að héraðið sé eitt sterkasta mjólkur og kjötframleiðslusvæði landsins. Margvíslegur þjónustuiðnaður hafi byggst upp í kringum matvælaiðnaðinn. Ferðaþjónusta og matarmenning sé mikilvæg grein í örri þróun. Þessar greinar skipta sköpum fyrir búsetu og afkomu íbúa héraðsins. Ennfremur segir að fréttir af nýgerðum milliríkjasamningi milli Íslands og Evrópusambandsins (ESB), um viðskipti með búvörur og niðurfelling tolla, veki því upp ugg um framtíðarhorfur landbúnaðar og matvælaiðnaðar í Skagafirði.
„Afnám tolla í þeim mæli sem samningarnir gera ráð fyrir geta haft ófyrirséðar afleiðingar í för með sér fyrir innlendan landbúnað og matvælavinnslu. Samningurinn við ESB virðist gerður án samráðs og í algjörri andstöðu við gildandi samninga um starfskilyrði greinarinnar sem og stefnu stjórnvalda um matvælaframleiðslu á Íslandi. Stjórnvöld virðast einnig hafa vanrækt að gera fyrirfram heildræna úttekt á áhrifum samningsins á vöruframboð þróun og samkeppnisstöðu einstakra búgreina til lengri tíma. Atvinnuöryggi og störf fjölda fólks er sett í uppnám sem og rekstur afurðastöðva og fyrirtækja í matvælavinnslu, og iðnaði,“ segir í tilkynningunni.
Lagt er til að meta áhrif á afurðaverð til bænda áður en lengra er haldið, líklega þróun á markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu og tekjuleg áhrif að teknu tillit til áhrifa aukins markaðsaðgangs. Störf og afkoma fjölda bænda og starfsfólks í úrvinnslugreinum sé í húfi.
„Aðalfundur VG í Skagafirði skorar því á þingmenn að taka málið upp og staðfesta ekki slíka samninga nú án þess að gengið hafi verið frá nýjum samningum um starfsskilyrði landbúnaðarins til lengri tíma. Núverandi búvörusamningur rennur út í lok næsta árs. Fyrirkomulag tolla hefur verið hluti slíkra samninga og því eðlilegt að ákvarðanir um breytingar á þeim séu teknar samhliða gerð nýrra langtímasamninga um starfskilyrði landbúnaðar og matvælavinnslu í landinu,“ segir loks í ályktun VG í Skagafirði.
