Lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Var þetta gert í samráði við vísindamenn, lögreglustjórana á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík samkvæmt fréttatilkynningu sem ríkislögreglustjóri sendi frá sér fyrir skömmu.

Í fréttatilkynningu segir að óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafir vegna jarðskjálfta.

Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum. Varnir fyrir jarðskjálfta má finna hér. Viðbrögð við jarðskjálfta má finna hér.

Fleiri fréttir