Magnaðir maskarar!!

Fröken Fabjúlöss hefur svolítið verið að prufa sig áfram með maskara seinustu vikur og er búin að finna uppáhöld mánaðarins!

Annars vegar er það They´re real! frá Benefit. Þessi maskari er einfaldlega bara brjálæðislega góður! Frökenin heyrði hvísl um þennann grip í dimmum skúmaskotum veraldarvefsins en lét sig svosem ekki dreyma stóra drauma um að eignast hann þar sem hann fæst ekki á Íslandi. En svo bárust þær fregnir að hægt væri að kaupa hann um borð í Icelandair vélunum og beið Fab færis og stökk á næstu vinkonu sem átti leið um loftin blá og lét fjárfesta í 2 stykkjum. Fröken Fabjúlöss getur ekki sagt að hún sjái mikið eftir peningunum sem voru þó ekki það miklir til að byrja með! Eitt af því sem gerir hann svona merkilegann er burstinn sem er sérhannaður til að lengja, þétta og krulla augnhárin. Auk þess er á endanum kúlulaga bursti sem notaður er til að greiða úr augnhárunum og lengja þau.

Þessi maskari stendur undir "hæpinu" og rúmlega það. Hann lengir augnhárin merkjanlega, helst eins allann daginn án þess að byrja að molna og þó svo að Frk. Fab þurfi ekki að bretta augnhárin, þá er goðsögnin sú að þessi maskari leysi það vandamál og með notkun hans heyri aunghárabrettun sögunni til- Þennan orðróm heyrði Fröken Fabjúlöss eftir áreiðanlegum heimildum! Það eina í raun sem Frökenin hefur upp á maskarann að klaga er hvað er erfitt að ná honum af húðinni ef klaufaskapur er með í för við ásetningu. Annars er hann æði!!!!

Svo er röðin komin að hinum maskaranum sem eru í raun tvö stykki af sömu gerð bara sitthvor liturinn, og þar sem þeir eru litaðir þá eru þeir að sjálfsögðu í uppáhaldi hjá litafíklinum Fröken Fabjúlöss!! Golden Rose Style Volume heitir snilldin og hefur Fröken Fabjúlöss komið höndum yfir hann í bláu og grænu! Það er svosem engin sérstök flugvélavísindi á bak við burstann á þeim, óttalega hefðbundinn og þekur ágætlega, en almáttugur guð hvað litirnir eru fallegir! Það er ekkert meira inn í sumar en að vera með litríkann eyeliner og litaðann maskara, og uppfylla Style Volume maskararnir frá Golden Rose hlutverkið með sóma! Og fegurðin við Golden Rose maskarana er að þeir fást víða á Íslandi, og þurfti Fröken Fabjúlöss ekki að leggja leið sína lengra en út í Snyrtistofuna Tána á Sauðárkróki og punga út litlum 1400 krónum fyrir stykkið!! Heyrst hefur því hvíslað að Wanita sé með Golden Rose vörurnar, og væri ekkert ólíklegt að dýrðin fyrirfyndist þar líka þó Frökenin fullyrði það ekki.

Fröken Fabjúlöss mælir með They´re Real maskaranum frá Benefit og lituðu Style Volume maskörunum frá Golden Rose og sýnir myndirnar að neðan máli sínu til stuðnings!

Fleiri fréttir