Magnaður meiköppartist!
Fröken Fabjúlöss er veik fyrir öllu sem kallast falleg förðun!! Tímunum saman getur hún dundað sér við það að "brása" í gegnum vefsíður og tímarit að skoða fallegar farðanir!
Þessvegna varð Fröken Fabjúlöss ansi hreint hamingjusöm þegar hún datt inn á bloggsíðu hinnar sænsku Lindu Hallberg, sem er einstaklega hæfileikaríkur Make up artist og hárgreiðslukona með hippalegann anda og sköpunargáfu sem á sér engin takmörk.
Það sem Fröken Fab er að fíla við þessa síðu er að hún er með lið sem heitir "Dagens make-up", og þangað inn dælir hún myndum af því hvernig hún er förðuð frá degi til dags og oft eru farðanirnar svo flottar hjá henni að Fröken Fab verður abbó!
Einnig er Linda með smá svona "how to" lið, þar sem hún fer lið fyrir lið í gegnum förðun sem hún er að setja á sig. Þessi síða er algjörlega brill, hvort sem heldur til að vera fluga á vegg í skemmtilegu lífi fallegrar stelpu með frjálsann anda eða til að fá innblástur og hugmyndir að útliti og förðunum :)
Linkurinn inn á síðuna hennar er: http://www.lindahallberg.se