Málþing um Jóhönnu Jóhannesdóttur

Jóhanna Jóhannesdóttir.
Jóhanna Jóhannesdóttir.

Málþing um Jóhönnu Jóhannesdóttur frá Svínavatni verður haldið í Kvennaskólanum á Blönduósi þann 27. september næstkomandi. Jóhanna, sem fædd var  4. nóvember 1895 og lést 1. maí 1989, var bóndi og hæfileikarík handyrðakona frá bænum Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu.

Málþingið er samstarfsverkefni Þekkingarsetursins á Blönduósi, Textílsetur Íslands, Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi og Heimilisiðnaðarfélags Íslands. SSNV, Landsvirkjun og Húnavatnshreppur styrkja verkefnið.

Jóhanna stundaði nám á Kvennaskólanum á Blönduósi, sem vakti áhuga hennar á íslenskum heimilisiðnaði, og lærði vefnað á Akureyri. Hún var sérstök áhugamanneskja um vinnslu úr íslenskri ull, vann ullina frá grunni og prjónaði verk sem vöktu athygli jafnt innanlands sem utan. Jóhanna var formaður Kvenfélags Svínavatnshrepps um tíma og tók virkan þátt í að miðla þekkingu og varðveita séríslenska menningararfleifð.

Málþingið verður sett í Kvennaskólanum kl. 14:00. Dr. Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur, Iðunn Vignisdóttir bókmennta- og sagnfræðingur, og Sólborg Pálsdóttir sagnfræðingur og héraðsskjalavörður, flytja erindi. Kvenfélag Svínavatnshrepps mun sjá um kaffiveitingar en dagskráin verður nánar auglýst síðar.

Fleiri fréttir