Mannvistarleifar undir öskulagi frá 1104

Um miðjan síðasta mánuð voru starfsmenn Skagafjarðarveitna við hreinsun upp úr lagnaskurði á safnasvæðinu í Glaumbæ í þeim tilgangi að leggja í hann nýjar lagnir. Notuðu starfsmenn Byggðasafnsins tækifærið og hreinsuðu kanta skurðarins, í heimildaleit.

Um er að ræða um 60 cm djúpan skurð sem Guðmundur St. Sigurðarson, fornleifafræðingur, rannsakaði við þetta tækifæri. Hreinsaði hann,  teiknaði, myndaði, mældi og staðsetti ýmiskonar leifar mannvirkja og mannlegra athafna.

Verið var að leggja nýjar lagnir í gamlan lagnaskurð á safnsvæðinu í Glaumbæ og það má sannarlega kallast merkilegt hvað einn skurður getur upplýst, þótt gamall sé og farið sé niður á sama stað og fyrir mörgum áratugum.

„Um 30 m suður af Brandahúsi og Langabúri sjást greinilega mannvistarleifar undir öskulagi frá 1104, sem þýðir að við getum rennt stoðum undir þá kenningu að mannvirki á bæjarhólnum eru tilkomin á sama tíma og 11. aldar mannvistaleifar niðri á túni vitna um,“ segir í frétt á vef Byggðasafns Skagfirðinga.

Á öðrum stað í skurðinum, suðvestan við öskuhólinn, sjást hleðslur frá því á og fyrir 1766 og á enn öðrum stað koma fram fallegar klömbrur sem hafa væntanlega verið hluti af húsvegg.

Fleiri fréttir