Manstu gamla daga komið á fjalirnar
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
28.05.2015
kl. 12.08
Söngdagskráin Manstu gamla daga er nú komin á fjalirnar í fimmta sinn. Fyrsta sýningin var í Bifröst á Sauðárkróki í gærkvöldi og verður önnur sýning þar í kvöld. Sögusviðið að þessu sinni er Skagafjörður 1955 til 1958, dægurlögin, tíðarandinn og sögur af fólkinu.
Sögumaður er Björn Björnsson og söngvarar þau Guðrún Jónsdóttir og Róbert Óttarsson. Hljómsveitina skipa Aðalsteinn Ísfjörð, Jón St. Gíslason, Sigfús Benediktsson, Margeir Friðriksson, Jóhann Friðriksson og Guðmundur Ragnarsson.