Margir viðburðir í boði á forsælunni

Lista- og menningarhátíð Skagfirðinga, Sæluvikan, verður sett á morgun, sunnudag. Þó er forsælan komin á skrið og margir viðburðir í boði, svo sem Vormót Molduxa sem hófst kl. 12 og er í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki.

Þá verður opnun myndlistarsýningarinnar Litbrigði samfélags er kl. 14, Bútasaumssýning frá kl. 14-17 í Kakalaskála í Kringlumýri og Trúbbakvöld á Kaffi Krók í kvöld.

Klukkan 13 hefst sýning í reiðhöllinni Svaðastöðum á vegum reiðkennarabrautar Hólaskóla og stórsýningin Tekið til kostana hefst kl. 20 í reiðhöllinni. Þá fer fram keppni á milli bestu hestamanna landsins og einnig verður skeið- og stjörnusýning valinna hesta.

Á morgun verður Sæluvikan svo formlega sett, eins og kom fram hér að ofan, í Húsi frítímans kl. 14. Á dagskrá er ávarp, tónlistaratriði og úrslit úr vísnakeppni Safnahússins kynnt.

Þá verður bókamarkaður Lafleur, þar sem um 50 bókatitlar verða til sölu og kynningar, í Gallerí Lafleur á Aðalgötu, frá kl. 12-18. Opið hús verður í Maddömukoti á Aðalgötu 16B frá kl. 14-17 og Bútasaumssýning í Kakalaskála kl. 14-17. Ástríkur á Goðabakka verður til sýningar í Króksbíói kl. 16 og spiluð verður félagsvist í félagsheimilinu Ljósheimum kl. 20 annað kvöld.

Leikverkin Það er að koma skip og Barið í brestina verða frumsýnd. Það er að koma skip verður sýnt kl. 17 í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi og Barið í brestina kl. 20 í Bifröst á Sauðárkróki.

Það er sko af nógu að taka, Sæluvikudagskrána má skoða með því að smella á auglýsinguna hér til hægri - gleðilega hátíð!

Fleiri fréttir