Margir vilja leggja sitt af mörkum

Eftir að auglýst var söfnun til styrktar fimm ára flogveikum dreng á Sauðárkróki, Ívari Elí Sigurjónssyni, hafa fjölmargir brugðist við og viljað leggja fjölskyldunni lið, eins og nánar er fjallað um í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í gær.
Veitingastaðurinn Hard wok á Sauðárkróki seldi 361 hamborgara síðasta vetrardag og rann sú innkoma öll til fjölskyldunnar. Sama er að segja um áheit sem nemendur 7. og 8. bekkjar Varmahlíðarskóla söfnuðu þegar þeir hlupu svokallaðan Hegraneshring. Þá efndu tveir ungir drengir til tombólu í Skagfirðingabúð og Þreksport lagði málefninu lið með svokölluðum Þreksportleikum.