Margrét Eva hjá Matís á Sauðárkróki í sigurliðinu
Nýsköpunarkeppnin Ecotrophelia Ísland fór fram 20. maí síðastliðinn. Í sigurliðinu, sem þróaði humarpaté, var meðal sex annarra Margrét Eva Ásgeirsdóttir, nemi við HÍ og starfsmaður Matís á Sauðárkróki, sem staðsett er í Verinu vísindagörðum. Fimm lið tóku þátt í keppninni.
Keppnin felst í að þróa markaðshæf, vistvæn matvæli eða drykki og rétt til þátttöku hafa nemendahópar, tveir til tíu í hverjum hópi, úr öllum háskólum landsins. Að keppninni standa háskólar landsins, Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins.
Verðlaun voru afhent á ráðstefnu Matvælalandsins Íslands á Hótel Sögu 21. maí þar sem nemendurnir sýndu líka afurðir keppninnar. Varan Humarpaté varð hlutskörpust og hlutu höfundar þess verðlaunagrip, peningaverðlaun og ráðgjöf frá Matís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands, auk þátttökuréttar í keppninni Ecotrophelia Europe seinna á árinu. Allir hóparnir fengu viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna og ávísun á ráðgjöf frá Nýsköpunarmiðstöð.