Margverðlaunuð sundlaug

Sundlaugin á Hofsósi hlaut í vikunni Menningarverðlaun DV í flokki byggingarlistar eru þetta önnur verðlaunin sem sundlaugin vinnur á stuttum tíma því eins og Feykir greindi frá á dögunum hlaut hún einnig Steinsteypuverðlaunin 2011.

Í rökstuðningi dómnefndar DV segir; „Bygging við sundlaug hýsir búnings- og baðaðstöðu fyrir útilaug og potta. Staðsetning sundlaugarinnar er valin til að ná tengslunum við hafið, laugarkerið stefnir á Drangey. Kantur þess hluta kersins er lægri þannig að vatnið fellur fram af honum og sjónrænt rennur sundlaugarvatnið og sjórinn saman í eitt. Lögð er áhersla á mikilvægi náttúrulegrar dagsbirtu í byggingunni. Aðdragandi og ferðalag um húsið er skýrt, frá götu um innri rými sem leiðir til hámörkunar upplifunar í sundlauginni sjálfri með útsýni yfir hafflöt og Drangey. Auðmýkt gagnvart umhverfinu og landslagi fjarðar, fjalla og Drangeyjar einkenna verkið. Landslag og þak hússins skapar skemmtilegt útisvæði í bænum. Öll staðarmyndun er til fyrirmyndar og upphefur fallegt útsýni. Verkið er gott fordæmi fyrir íslenska baðmenningu.“

Eins og kunnugt er voru það þær Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir sem gáfu íbúum Skagafjarðar sundlaugina fyrir tæpu ári síðan.

Fleiri fréttir