Marteinn Friðriksson látinn
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks, Marteinn Friðriksson, lést skömmu fyrir páskana á heimili sínu í Garðabæ. Marteinn var mikilsvirtur í bæjarlífinu á Sauðárkróki en lengst af starfaði hann sem framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks hf. frá stofnun hennar árið 1955 þar til hann lét af störfum árið 1987.
Marteinn Friðriksson, fv. framkvæmdastjóri
F. 22.6. 1924, d. 18.4. 2011
„Vinir mínir fara fjöld....“ kvað Bólu-Hjálmar á sínum tíma og víst er að þegar árunum fjölgar þá þarf maður að sjá á bak sífellt fleirum af samferðamönnum sínum. Svo fór undirrituðum, þegar honum barst sú fregn að Marteinn Friðriksson, fv. framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks h.f. hefði orðið bráðkvaddur á heimili sínu í Garðabæ, að hugsanir flugu víða og margt kom upp í vitundina sem minnti á samskipti okkar. Marteinn var alla tíð kjarkmaður og víst er, að hann hefði sjálfur áreiðanlega kosið að „deyja standandi“ og ber manni að vera þakklátur fyrir að hann þurfti ekki að enda ævina ósjálfbjarga á sjúkrastofnun.
Sigurður Marteinn, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur á Hofsósi 22.6. 1924. Foreldrar hans voru þau Friðrik Jónsson, útvegsbóndi og k.h. Guðrún Sigurðardóttir. Marteinn lauk prófi frá Samvinnuskólanum í Reykjavík 1942, starfaði fyrst hjá Kf. Árnesinga við bókhaldsstörf og síðar Kf. Eyfirðinga á Akureyri. Vann á vegum SÍS við eftirlitsstörf og uppgjör kaupfélaga árið 1946, en síðan hjá Útgerðarfélagi Akureyringa og Fisksölusamlagi Eyfirðinga til 1950 er hann tók við nýstofnuðu kaupfélagi á Ólafsfirði og var þar í þrjú ár. Síðan hjá Skattstofunni á Akureyri uns hann fluttist til Sauðárkróks og tók þar fyrst við starfi sem daglegur endurskoðandi en síðar sem framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks hf. frá stofnun hennar 23.12. 1955. Á Sauðárkróki tók Marteinn virkan þátt í félags- og bæjarmálum, var m.a. bæjarfulltrúi um skeið og sat í stjórnum fyrirtækja og félagasamtaka. Meðal þess sem hann kom að á Sauðárkróki var stofnun Útgerðarfélags Skagfirðinga og var stjórnarformaður þess um árabil. Marteinn lét af störfum hjá Fiskiðjunni árið 1987, en starfaði síðan um hríð að málefnum Útgerðarfélags Skagfirðinga uns hann fluttist suður um heiðar í árslok 1988.
Marteinn Friðriksson var maður, sem fólk tók eftir. Hann var með hæstu mönnum vexti, andlitsdrættirnir voru í senn sterkir og fríðir og hann var afskaplega greindur maður og vel máli farinn og naut sín vel í ræðustóli. Hann verður öllum þeim minnisstæður, sem kynntust honum í leik og starfi.
Kona Marteins var Ragnheiður Bjarman, en hún lést 12. nóvember 2007 og eignuðust þau 7 börn og eru 6 þeirra á lífi. Ragnheiður var tónlistarkona mikil og áttu þau hjón auk annars sameiginlegan áhuga á klassískri tónlist og listum almennt. Börn þeirra bera foreldrum sínum og uppeldi gott vitni og eru öll vel menntuð og traustir borgarar í samfélagi sínu.
Sá, sem þetta ritar, þakkar Marteini fyrir áratuga ánægjulegt samstarf og vináttu, sem stóð allt til loka. Börnum hans og öðrum skyldmennum er vottuð samúð, þau eiga nú minninguna um vaskan mann, góðan og traustan fjölskylduföður og glæsilegan athafnamann.
/Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson