Matti Papi syngur í Sauðárkrókskirkju á skírdag
Sauðárkrókskirkja hefur til margra ára boðið söfnuðinum til tónleika og altarisgöngu að kvöldi skírdags, 5. apríl, kl. 20:00. Í ár ætlar stórsöngvarann Matthías Matthíasson, Matti papi, að gleðja kirkjugesti með söng.
Matti er löngu orðinn landsþekktur fyrir söng, hann hefur verið áberandi í tónlistarlífinu um langa hríð. Á dagskránni eru lög úr ýmsum áttum sem hæfa tilefninu.
Í hléi verður atburða skírdagskvölds minnst með óhefðbundinni altarisgöngu, þar sem brotið verður brauð frá Róbert bakara og bergt á vínþrúgum frá suðrænum löndum. Verið velkomin til kirkjunnar!
Heimild: Sauðárkrókskirkja